Fréttir
03.04.2009 | Steinunn Bergman
Vinnuhópur Eystrasaltsráðsins vegna barna í áhættu
Vinnuhópur um samstarf vegna barna í áhættu, WGCC, er hópur embættismanna frá ráðuneytum eða ríkisstofnunum sem bera ábyrgð á málefnum barna í aðildarlöndum Eystrasaltsráðsins.
Aðildarlöndin eru: Danmörk, Eistland, Finnland, Þýskaland, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur, Pólland, Rússland og Svíþjóð. Evrópusambandið á rétt á að fylgjast með starfinu.
WGCC skilgreinir, styður og innleiðir samstarf á milli landanna um börn í áhættu, einkum er varðar sameiginlegan vanda innan svæðisins. Á vegum samstarfsins er fjallað um þau viðfangsefni sem gefa tilefni til að hafa áhyggjur af börnum í áhættu, eins og þau eru skilgreind af sérfræðingum vinnuhópsins eða ákvörðuð af stjórnvöldum. Byggt á þessum niðurstöðum ákvarðar vinnuhópurinn forgangsverkefni og hrindir í framkvæmd aðgerðum í samræmi við þau. Aðgerðir og verkefni eru framkvæmd af yfirvöldum, stofnunum og samtökum í samstarfi við svæðis- og alþjóðleg samtök. Forgangsverkefni WGCC eru:
· Að vernda börn gegn öllum tegundum kynferðislegarar misnotkunar, ofbeldis og mansals
· Börn sem ekki njóta traustra forsjáraðila, hafa orðið viðskila við foreldra eða grunur leikur á að hafi sætt mansali
· Götubörn og börn án fjölskyldu
· Réttindi barna sem dvelja á stofnunum og/eða dvelja í öðrum úrræðum á vegum barnaverndaryfirvalda
· Afbrotabörn og áhættuhegðun barna